Hittu sálfræðing 

á netinu

Dávur í Dali, sálfræðingur
MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík
6 ára starfsreynsla
Greining og meðferð fullorðinna

Um Stofu Dávs

Ég heiti Dávur í Dali. Nafnið er færeyskt og fallbeygist eins og mávur.


Ég er löggiltur sálfræðingur og býð upp á sálfræðiþjónustu á netinu. Í viðtölunum legg ég áherslu á að skilja stöðu hvers og eins, hvað hefur áhrif á líðan fólks og hvað getur hjálpað því áfram. Ég vinn út frá gagnreyndum aðferðum og laga þjónustuna að þörfum, markmiðum og aðstæðum hvers einstaklings.


Ég hef sex ára starfsreynslu sem sálfræðingur, meðal annars á Landspítalanum, heilsugæslu og hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Þar hef ég unnið með fólki sem glímir við kvíða, þunglyndi, lágt sjálfsmat, sorg, streitu, kulnun og aðra sálræna erfiðleika.


Viðtöl fara fram í gegnum KaraConnect, öruggt og viðurkennt kerfi fyrir fjarviðtöl.

Bóka tíma

Fyrsti tíminn kostar 10.000 kr. Í fyrsta tímanum ræðum við vanalega hvernig þér hefur liðið undanfarið, hvað hefur haft áhrif á líðan þína og hvaða næstu skref gætu hentað best.
Eftir fyrsta tíma kostar hvert viðtal 20.000 kr. Viðtöl eru 50 mínútur að lengd.

Það eru tvær leiðir til að bóka tíma eða breyta bókun:

1. Smelltu hér til a bóka á Noona.
2. Eða fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan.

Þegar viðtal er bókað færðu sjálfkrafa tölvupóst frá KaraConnect, öruggu og viðurkenndu kerfi fyrir fjarviðtöl. Hlekkurinn í tölvupóstinum hleypir þér inn í tímann.

Spurningar má einnig senda á [email protected]

Hafa samband